Heim Um BFR Staðsetning Hafa samband
Est. 1996 — Endurvakið 2025

BrettafélagReykjavíkur.

Við byggjum upp sterkt, sjálfbært og aðgengilegt samfélag í kringum hjólabretti þar sem allir eru velkomnir. Inniaðstaða í Dugguvogi — opið allt árið.

Allt árið· Hvaða veður sem er· Inniaðstaða· Dugguvogur 48· Opið öllum· Allt árið· Hvaða veður sem er· Inniaðstaða· Dugguvogur 48· Opið öllum·
Æfingar
01

Hjólabrettaæfingar
Haust 2026

Brettafélag Reykjavíkur býður upp á reglulegar hjólabrettaæfingar fyrir börn og ungmenni haustið 2026. Æfingarnar eru í Dugguvogi 48 og henta öllum — hvort sem þú ert byrjandi eða lengra kominn!
Hjólabrettaæfingar BFR
Reglulegar æfingar
Haust 2026 — Dugguvogur 48
Börn og ungmenni
Hentar byrjendum og þeim sem hafa einhverja reynslu
Inniaðstaða
Opið óháð veðri — allt árið
Mánaðarkort
02
kr7.990
á mánuði
Ótakmarkaður aðgangur að inniaðstöðunni í Dugguvogi 48. Við byggjum upp sterkt, sjálfbært og aðgengilegt samfélag í kringum hjólabretti þar sem allir eru velkomnir.
Skatepark Dugguvogur 48
Korthafar bera ábyrgð á eigin öryggi og umgengni. Óheimilt að hleypa öðrum inn án leyfis. Aðgangur virkjast næsta virka dag. Börn yngri en 18 ára þurfa samþykki forráðamanns.
Ótakmarkaður aðgangur
Inniaðstaðan í Dugguvogi 48 — hvenær sem þér hentar
Aðgangskóði
Virkjast næsta virka dag, berst á 24 klst. eftir greiðslu
Námskeið & viðburðir
Meðlimsaðgangur að öllum félagsviðburðum
Samfélag
Hluti af íslensku brettasamfélagi
Samfélag
03
Æfingar
Opið öllum
Við erum reglulega með opnar æfingar þar sem allir eru velkomnir - óháð aldri eða reynslu!
Viðburðir
Keppnir og viðburðir
Við höldum keppnir, sýningar og skemmtilega viðburði allt árið um kring.
Ungmenni
Næsta kynslóð
Sérstök námskeið fyrir börn og ungmenni. Forráðamenn alltaf velkomnir.
Instagram
📸
Fylgstu með
Sjáðu hvað er í gangi hjá okkur!
Hafa samband
04
Við erum
alltaf hér.

Endilega hafið samband við okkur í gegnum tölvupóst eða Instagram.

Vertu með.
Skráðu þig í dag.

Um BFR.

Saga okkar

Rætur okkar liggja í Brettafélagi Reykjavíkur sem var stofnað árið 1996 og lagði grunninn að íslenskri hjólabrettamenningu. Þegar félagið lá í dvala varð ljóst að mikilvægur hluti af senunni var í hættu. Hjólabrettamenning á Íslandi á skilið að lifa, dafna og þróast.

Árið 2025 var félagið endurvakið með skýra sýn: að byggja upp sterkt, sjálfbært og aðgengilegt samfélag í kringum hjólabretti þar sem allir eru velkomnir.

Hjólabretti er meira en íþrótt. Það er vettvangur fyrir sköpun, seiglu, sjálfstæði og persónulegan þroska. Við leggjum áherslu á bæði andlega og líkamlega vellíðan og bjóðum upp á opið umhverfi þar sem fólk á öllum aldri, af öllum kynjum og bakgrunni, getur fundið sig, byggt upp sjálfstraust og orðið hluti af samfélagi.

Með aðstöðu okkar innandyra að Dugguvogi 48 tryggjum við aðgengi að hjólabrettaiðkun allt árið, óháð veðri. Þar höldum við námskeið, viðburði og samfélagsverkefni sem styrkja íslensku hjólabrettasenuna og næstu kynslóð iðkenda.

Brettafélag Reykjavíkur er byggt af brettafólki, fyrir brettafólk.

Skatepark í Dugguvogi 48

Staðsetning.

Við erum staðsett í Dugguvogi 48, Reykjavík. Inniaðstaða opin allt árið — óháð veðri.

Staðsetning
Heimilisfang
Dugguvogur 48
Reykjavík, Ísland

Opna í Google Maps →
Mánudagur — FöstudagurOpið meðlimum
LaugardagurOpið meðlimum
SunnudagurOpið meðlimum

Hafa
Samband.

Endilega hafið samband við okkur ef þið hafið spurningar, hugmyndir eða viljið vita meira um starfsemi Brettafélags Reykjavíkur.


Hægt er að ná í okkur hér eða senda okkur skilaboð á Instagram: @brettafelagreykjavikur_


Við hlökkum til að heyra frá ykkur!

Við erum
alltaf hér.